Starf í verslun
Við leitum að nýjum liðsfélaga í verslunina okkar.
Fjölbreytt starf sem felur í sér afgreiðslu í verslun, netpantanir og ýmis skemmtileg verkefni.
Þetta er sveigjanlegt hlutastarf seinni parta og um helgar, með möguleika á aukinni vinnu yfir sumarið. Ef þú elskar kósý stemningu, fallega hluti og að láta fólki líða vel, þá passar þú fullkomlega inn í teymið okkar.
Starfið felur í sér:
- Móttöku og þjónustu við viðskiptavini í verslun
-
Aðstoð við pökkun, birgðir og frágang
- Uppstillingu og viðhald á fallegu og snyrtilegu umhverfi í verslun
-
Fullkomið fyrir nemendur eða einstaklinga sem elska skipulag og smáatriði.
Við leitum að manneskju sem:
- Elskar að skapa fallega upplifun fyrir aðra
- Er jákvæð, þjónustulunduð og með góða nærveru
- Hefur jákvætt viðmót og getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi
- Er skipulögð og þrífst í umhverfi þar sem stundum er mikið að gera
- Hefur auga fyrir smáatriðum og fallegri framsetningu
Við bjóðum:
- Skemmtilegt og lifandi starfsumhverfi
- Sveigjanlegan vinnutíma
- Góða afslætti af okkar eigin vörum
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að læra með hratt vaxandi íslensku merki
Starfstími: Frá apríl
Staðsetning: Reykjavík
Umsóknarfrestur: til og með 31. mars 2026
Umsóknir: Sendu stutta kynningu á þér og ferilskrá á heima@heimaergott.is með fyrirsögninni Starf í verslun
