Skilmálar
SKIL OG SKIPTI
Skilafrestur jólagjafa er út 5. janúar 2025
Mikilvægt er að skilamiði eða pöntunarnúmer sé meðfylgjandi. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum, óskemmdum umbúðum. Hægt er að skipta í aðra vöru eða fá inneign í verslun okkar. Upphæð inneignar eða skila skal sú hin sama og greitt var upphaflega fyrir vöruna. Ef varan uppfyllir þau skilyrði sem þarf til að fá endurgreiðslu, munt þú fá staðfestingu í tölvupósti.
Hægt er að koma til okkar í verslun Heima er gott í Faxafeni 10 til að skipta (sjá opnunartíma hér) . Hafir þú ekki tök á að koma í verslun skaltu senda póst á heima@heimaergott.is til að fá upplýsingar um skil og til að taka frá þær vörur sem skipta skal í. Þegar sá póstur hefur verið sendur hefst skilaferlið og 14 daga fresturinn er úr gildi. Við sendum þér þá allar upplýsingar til að skila og skipta. Þú greiðir kostnað við að senda skilin til okkar en við sendum þér ný skipti á okkar kostnað.
ENDURGREIÐSLA
Vörur keyptar í netverslun fást endurgreiddar ef skilað innan 14 daga sé kvittun eða greiðslustaðfesting fyrir hendi. Að 14 dögum liðnum fæst værum einungis skilað gegn inneign í verslun okkar. Engar undantekningar eru gerðar á þessu.
ATHUGIÐ að vinnsla skila og endurgreiðslna getur tekið allt að 14 daga eftir atvikum.
Séu vörur keyptar með afslætti skulu fæst þeim eingöngu skilað eða skipt á því verði sem þær voru keyptar á. Mikilvægt er að vera með pöntunarnúmer eða skiptimiða á vörunum.
Séu vörur keypt á lokaútsölu, fæst þeim hvorki skilað né skipt. Öll kaup eru því endanleg. Þær vörur eru merktar sérstaklega í netverslun og í greiðsluferli.
Við áskiljum okkur rétt til að hafna skilum séu merki um notkun greinileg eða að illa hafi farið fyrir vöru og umbúðum.
GREIÐSLA
Hægt er að greiða með öllum helstu greiðslukortum í gegnum örugga greiðslugátt. Við bjóðum líka upp á greiðslu í gegnum Netgíró og Aur.
AFHENDING
Sækja í verslun Heima er gott - FRÍTT
Dropp eða Pósturinn
EF VARA ER EKKI TIL
Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað.
Ef pöntun inniheldur vörur í FORSÖLU, sendum við hana ekki af stað fyrr en allt er komið á lager, nema sé sérstaklega óskað eftir því.
VERÐ
24% VSK er alltaf innifalinn í verði vörunnar. Heima er gott áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.
Við reynum að tryggja að öll verð sem birtast á síðunni okkar séu rétt en pöntun telst ekki gild fyrr en við höfum farið yfir hana og staðfest afgreiðslu. Ef það er verðmunur og vara hefur selst á röngu verði, munum við vera í sambandi við þig og ef þú óskar eftir því að fella niður pöntunina, færðu hana að fullu endurgreidda.
AFSLÁTTARKÓÐAR
Ef þér hefur boðist afsláttarkóði seturðu hann inn í greiðsluferlinu til að virkja hann.
Aðeins er hægt að nýta eitt tilboð / afslátt fyrir hverja pöntun, nema annað sé tekið fram. Hafi afsláttarkóði verið nýttur á vöru sem þegar er með afslætti telst pöntunin ógild.
ÚTSALA / LAGERSALA
Vörur keyptar á útsölu eða lagersölu fæst hvorki skilað né skipt og eru því öll kaup endanleg.
GÖLLUÐ VARA
Við reynum skoðum vöruna vel og vandlega áður en hún fer frá okkur og pössum að hún sé í lagi. Ef þú sérð að eitthvað er að vörunni, hafðu endilega samband við okkur.
ÓSÓTTAR PANTANIR
Hafi vara ekki verið sótt innan við 6 mánuði eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu.
UM VERSLUNINA
Netfang: heima@heimaergott.is
Verslunin Heima er gott er rekin af R13 ehf
Kennitala: 450418-1100
VSK númer: 131135
VIÐ VONUM AÐ ÞÚ NJÓTIR ÞESS AÐ VERSLA HJÁ OKKUR
Með því að versla hjá Heima er gott samþykkir þú skilmála þessa