Skip to main content

Jólastarf í verslun

Við leitum að hlýlegri, skapandi og jákvæðri manneskju sem vill taka þátt í að skapa jóla töfrana með okkur. 

Þetta er sveigjanlegt hlutastarf yfir jólatörnina, með möguleika á áframhaldandi samstarfi þegar ný verkefni taka við. Ef þú elskar kósý stemningu, fallega hluti og að láta fólki líða vel, þá passar þú fullkomlega inn í teymið okkar.

Starfið felur í sér:

  • Móttöku og þjónustu við viðskiptavini í verslun
  • Aðstoð við pökkun, birgðir og frágang
  • Uppstillingu og viðhald á fallegu og snyrtilegu umhverfi í verslun
  • Fullkomið fyrir nemendur eða einstaklinga sem elska skipulag og smáatriði.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er skipulagður, vandvirkur og áreiðanlegur
  • Hefur gott auga fyrir smáatriðum og fagurfræði
  • Elskar að skapa fallega upplifun fyrir aðra
  • Hefur jákvætt viðmót og getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi
  • Hefur áhuga á tísku, þjónustu og fallegum hlutum

Við bjóðum:

  • Hlýtt og skemmtilegt starfsumhverfi
  • Sveigjanlegan vinnutíma
  • Góða afslætti af okkar eigin vörum
  • Kósý og skapandi jólastemmningu
  • Möguleika á áframhaldandi starfi eftir áramót

Starfstími: Frá miðjum nóvember til loka janúar
Staðsetning:
Reykjavík
Umsóknarfrestur:
til og með 5. nóvember 2025
Umsóknir:
Sendu stutta kynningu á þér og ferilskrá á heima@heimaergott.is með fyrirsögninni Jólastarf í verslun