CONTENT & SOCIAL MEDIA COORDINATOR
Heima er gott er að leita að skapandi, skipulagðri og drífandi manneskju til að halda utan um content, samfélagsmiðla og herferðir með okkur.
Við erum að leita að manneskju sem elskar fallegt content en er jafnframt týpan sem elskar að hafa yfirsýn, gera plön og sjá til þess að hlutirnir gerist.
Þetta er sveigjanlegt starf eftir samkomulagi, sem getur vaxið með rétta einstaklingnum.
Hlutverkið felur meðal annars í sér:
- Skipulagningu á content calendar fyrir Instagram, TikTok og aðra miðla
- Að vinna með ljósmyndurum, videographers, creators, influencers og öðrum samstarfsaðilum eftir verkefnum
- Að halda utan um content fyrir launches, herferðir og vörudrop
- Að skipuleggja hvað þarf að mynda, hvenær og fyrir hvaða miðla
- Að samræma organic content og efni fyrir auglýsingar
- Að halda utan um deadlines, assets og afhendingar
- Að koma með hugmyndir að Reels, TikTok, Stories og öðru contenti
- Að fylgjast með trends og finna leiðir til að útfæra þau á Heima er gott hátt
- Að aðstoða við planning og framkvæmd á campaigns og launches
-
Að tryggja að við séum alltaf skrefinu á undan í stað þess að vera að finna út hvað við eigum að pósta í dag
Við erum sérstaklega að leita að þér ef þú…
- ert mjög skipulögð en líka skapandi
- hefur gott auga fyrir branding, tísku og social media
- ert mikið á Instagram og TikTok og fylgist náttúrulega með því sem er að gerast
- getur tekið hugmynd og hjálpað okkur að breyta henni í raunverulegt campaign/content plan
- ert sjálfstæð, lausnamiðuð og átt auðvelt með að koma hlutum í framkvæmd
- kannt að vinna með deadlines og mörg verkefni í einu
- hefur áhuga á tísku, lifestyle, branding og e-commerce
Reynsla af social media, content creation, marketing eða sambærilegu er mikill kostur, en við horfum líka mikið á augað, orkuna, skipulagshæfileikana og hvað þú getur skapað.
Við viljum finna manneskju sem getur orðið mikilvægur hluti af Heima er gott teyminu og hjálpað okkur að gera enn meira úr öllum hugmyndunum, herferðunum og verkefnunum sem eru framundan.
Langar þig að vinna með okkur?
Sendu umsókn á rebekka@heimaergott.is með fyrirsögninni „Content & Social Media Coordinator“.
Segðu okkur aðeins frá þér, hvað þú ert að gera í dag og af hverju þig langar að vinna með Heima er gott.
Sendu okkur gjarnan:
- CV eða stutta samantekt á reynslu
- Portfolio eða dæmi um verkefni/content sem þú hefur unnið að, ef við á
- Instagram/TikTok eða aðra miðla sem þú vilt sýna okkur
Og síðast en ekki síst, segðu okkur aðeins frá þér. Við erum ekki bara að leita að réttu reynslunni á blaði, heldur manneskju sem passar vel inn í teymið, brandið og það sem við erum að byggja. 🤍
