Elsku svefninn okkar, stundum getur verið erfitt að ná honum. Lokaðu á áreitið og nældu þér í hvíld með þessari notalegu augngrímu.
Augngríman okkar er úr besta silki sem er hægt að fá, til að passa upp á augun þín, augnhárin og viðkvæmu húðina í kringum augun. Hún er með sérstöku ,,blackout’’ millilagi, sem passar upp á að birtan laumist ekki inn. Hún er líka aðeins stærri en þessi venjulega augngríma, þannig hún er extra kósý …
- 100% Mulberry silki
- Með ,,blackout’’ millilagi til að loka á birtuna
- 22 momme silki
- Stærð 21 x 10,5
PRO TIP: Ef þér finnst gríman of þröng á þér er töfraráðið að renna yfir teygjuna með straujárni eða sléttujárni til að losa hana aðeins