Vinsælasta samsetning fyrr og síðar, buxur eins klassískar og þær gerast og oversized kósý bolur með. Þetta klikkar ekki.
KARA bolur : Klassískur og kósý. Þessi oversized bolur er hannaður fyrir þær sem vilja lúxus og þægindi í einni flík, fullkominn fyrir kósý lífið. Úr mjúka bambusefninu okkar sem andar vel og lagar sig að hreyfingum þínum. Hann er léttur, laus í sniði og einstaklega mjúkur, svo þú getur verið bæði flott og þægileg allan daginn. Klæddu þig upp eða niður, þetta verður nýja uppáhalds flíkin þín.
OVERSIZED FIT - taktu minni stærð ef þú vilt hafa þrengri
NADÍA buxur : Mjúkar, léttar og ótrúlega þægilegar, NADÍA buxurnar eru gerðar úr hinu vinsæla bambus efninu okkar sem andar vel og hreyfist fallega. Þær eru með teygju og bandi inni í mittið og beinu sniði sem gefur afslappað, klassískt útlit.